fbpx

Skortur á brotajárni í Evrópu og verðið hækkar

Verð á brotajárni hefur aldrei verið eins hátt og það er núna. Við fylgjumst vel með heimsmarkaðsverði og viljum bregðast við og höfum því hækkað verðið hjá okkur um 150% . Kílóverðið er 20 krónur og því heilmikil verðmæti í brotajárni og ónýtum heimilistækjum eins og þvottavélum, þurrkurum og eldavélum.

Þessi hækkun á heimsmarkaðsverði kom að mestu leyti til vegna áhrifa covid sem hefur hægt á öllu. Einnig hafa viðskiptaþvinganir gagnvart Rússlandi leitt til skorts á járni þar sem Rússar hafa verið nokkuð stór innflutningsaðili á brotajárni til Evrópu. Við fylgjumst vel með stöðunni á markaðnum en það á eftir að koma betur í ljós hver þróunin verður.

Undanfarin ár hefur íslenskur sjávarútvegur verið í stöðugri uppsveiflu.

Sækja brotajárn á staðinn

Við útvegum plastkör og gáma á staði innan höfuðborgarsvæðisins viðskiptavinum að kostnaðarlausu og sækjum þegar búið er að fylla. Það er einnig hægt að koma til okkar á staðinn með málma en við erum með frábæra aðstöðu í Flugumýri 12 í Mosfellsbæ. Hægt er að keyra inn í vöruskemmuna, losa í hlýjunni og keyra út á öðrum stað. Við vigtum allt sem komið er með og greiðum fyrir kílóið en greiðslur eru framkvæmdar samdægurs. Starfsemin hefur gengið mjög vel og viðskiptavinum hefur fjölgað jafnt og þétt, viðskiptavinurinn er í algjörum forgrunni hjá okkur.

Hvað er hægt að endurvinna?

Alla málma er hægt að endurvinna og ryðgað járn einnig. Það er umhverfisvænna að koma því í umferð aftur en að láta það liggja og því um að gera að hreinsa upp í kringum sig og koma þessu í verð. Við sendum brotajárn með skipi til Hollands þar sem það er endurunnið. Gamalt ryðgað járn getur orðið að nýjum þurrkara eða þvottavél. Við hvetjum því alla, bæði einstaklinga og fyrirtæki að hafa samband við okkur og koma brotajárninu í verð.