fbpx

Umhverfisvernd borgar sig

Hjá Málmaendurvinnslunni geta einstaklingar og fyrirtæki losað sig við málmúrgang og fengið greitt fyrir verðmætin sem í honum liggja. Þannig er hægt að stuðla að sjálfbærni og fá borgað fyrir það.

Málmaendurvinnslan hóf starfsemi fyrir aðeins fjórum mánuðum, en fyrirtækið kaupir brotajárn og brotamálma, flokkar málminn og kemur honum svo í endurvinnslu í Hollandi.

Fyrirtækið býður fólki nýjan valkost þegar kemur að því að flokka og skila af sér úrgangi.

Í dag hefur átt sér stað mikil vitundarvakning varðandi mikilvægi þess að flokka og skila rétt af sér úrgangi, en um leið hafa fyrirtæki og einstaklingar gert sér sífellt betur grein fyrir því að í málmum og öðrum úrgangi liggja heilmikil verðmæti.

Fólk hefur vanist því að fara með dósir og flöskur í sérstaka móttöku til að fá greitt fyrir þær og nú býðst fólki að gera það sama með málma hjá okkur,“ segir Högni. „Það þarf því ekki lengur að fara með þetta í Sorpu, þar sem maður þarf jafnvel að borga fyrir að henda, heldur er hægt að koma til okkar með málmúrgang og fá greitt fyrir hann. Þannig er hægt að spara sér kostnað, skila rétt af sér og jafnvel græða fjárhagslega á umhverfisvernd, fyrir nú utan ávinninginn fyrir umhverfið.

Engar lágmarkskröfur og gott verð

Við sækjumst aðallega eftir góðmálmum eins og áli, ryðfríu stáli, kopar, brassi, járni og rafmagnsköplum.
Við tökum líka á móti hvarfakútum úr bílum, sem geta verið mjög verðmætir. Á hverjum kút er númer sem
segir til um verðmæti hans og við greiðum eftir því, en hver kútur getur verið allt að 12 þúsund króna virði.

Þar sem við erum lítið fyrirtæki með mjög litla yfirbyggingu og engar stórar vinnuvélar flytjum við út jafnóðum og við fyllum gáma. Fyrir vikið getum við greitt betur fyrir málmana en gengur og gerist. Verðlistinn okkar hefur vakið mikla athygli og ótrúlega margir hafa sagt okkur að þeir hafi ekki haft hugmynd um að það væri hægt að fá greitt fyrir þennan úrgang. Við erum líka ekki með neinar lágmarkskröfur á magn, það er þess vegna hægt að mæta til okkar með eitt blöndunartæki.

Aftur á móti höfum við ekki aðstöðu til að taka á móti bílhræjum, stórum raftækjum eða spilliefnum. Ísskápar eru til dæmis í flokki spilliefna.

Flokkun er framtíðin

Í framtíðinni verður einfaldlega gerð krafa um að skila öllu rétt af sér, annars fellur til aukakostnaður. Sem betur fer er vitundarvakning um mikilvægi umhverfisverndar, því við þurfum öll að vera sameinuð í henni. Við viljum því hvetja sem flesta til að koma til okkar svo við getum keypt eins mikið af brotamálmi og mögulegt er. Við vonumst svo til að geta stækkað starfsemi okkar þegar fram líða stundir.