fbpx

Síðasta útskipun ársins

Málma skipaði út áli og brotajárni frá Akranesi og Bíldudal síðustu vikuna í nóvember. Lestað var í MV Jamtland en útskipunin hófst á Akranesi og skipið sigldi því næst vestur á Bíldudal.  Veður var stillt en kalt allan lesturnartímann og gekk útskipunin áfallalaust fyrir sig. MV Jamtland sigldi með farminn til Hollands þar sem hann fer í endurvinnslu hjá European Metal Recycling B.V.