Starfsfólk Málma skellti sér í árshátíðarferð til Saalbach-Hinterglemm í austurrísku ölpunum fyrstu vikuna í febrúar. Er þetta í annað sinn sem hópurinn fer saman á skíði enda eru þetta bestu fríin. Allir nutu sín vel og verður erfitt að toppa þessa skemmtilegu ferð.