fbpx

Útskipun í blíðskaparveðri frá Akraneshöfn

Dagana 19 og 20 maí var önnur útskipun ársins frá Akraneshöfn. Skipað var út 1500 tonnum af brotajárni úr járnaporti Málma á Akranesi í MV Vitin en skipið er gert út frá Færeyjum. Veðrið lék við mannskapinn og gekk útskipunin áfallalaust fyrir sig. Siglt verður með farminn til Rotterdam í Hollandi og sér European Metal Recycling um aflestun og frekari endurvinnslu.