fbpx

IFAT 2026 endurvinnslusýning í Munchen

Dagana 4 – 7 maí fóru þrír vaskir starfsmenn Málma á endurvinnslusýningu IFAT í Munchen. Sýningin er haldin á tveggja ára fresti og sýnir allt það nýjasta í tækni í endurvinnslu í heiminum. Skoðaðar voru lausnir í endurvinnslu bíla, kaplaklippur, uppþvottastöðvar fyrir kör, járnapressur og margt fleira. Er þetta einnig frábær leið til að hitta fólk í bransanum bæði hérlendis og erlendis.