Sink er meðal annars að finna í gömlum sinkþynnum af þökum og í holræsum. Algengt er að blanda sinki með kopar og úr verður brass eða messing sem mikið er notað í hreinlætistæki. Sink er einnig mikið notað til að koma í veg fyrir tæringu á skipum. Mjög auðvelt er að endurvinna sink þar sem bræðslumark á sinki er 419 °C.