IFAT 2026 endurvinnslusýning í Munchen

Dagana 4 – 7 maí fóru þrír vaskir starfsmenn Málma á endurvinnslusýningu IFAT í Munchen. Sýningin er haldin á tveggja ára fresti og sýnir allt það nýjasta í tækni í endurvinnslu í heiminum. Skoðaðar voru lausnir í endurvinnslu bíla, kaplaklippur, uppþvottastöðvar fyrir kör, járnapressur og margt fleira. Er þetta einnig frábær leið til að hitta fólk […]

Útskipun í blíðskaparveðri frá Akraneshöfn

Dagana 19 og 20 maí var önnur útskipun ársins frá Akraneshöfn. Skipað var út 1500 tonnum af brotajárni úr járnaporti Málma á Akranesi í MV Vitin en skipið er gert út frá Færeyjum. Veðrið lék við mannskapinn og gekk útskipunin áfallalaust fyrir sig. Siglt verður með farminn til Rotterdam í Hollandi og sér European Metal […]

Árshátíðarferð Málma til Saalbach-Hinterglemmsta

Starfsfólk Málma skellti sér í árshátíðarferð til Saalbach-Hinterglemm í austurrísku ölpunum fyrstu vikuna í febrúar. Er þetta í annað sinn sem hópurinn fer saman á skíði enda eru þetta bestu fríin. Allir nutu sín vel og verður erfitt að toppa þessa skemmtilegu ferð.

Síðasta útskipun ársins

Málma skipaði út áli og brotajárni frá Akranesi og Bíldudal síðustu vikuna í nóvember. Lestað var í MV Jamtland en útskipunin hófst á Akranesi og skipið sigldi því næst vestur á Bíldudal.  Veður var stillt en kalt allan lesturnartímann og gekk útskipunin áfallalaust fyrir sig. MV Jamtland sigldi með farminn til Hollands þar sem hann fer […]

Útskipun frá Reyðarfirði og Akranesi í október 2025

Málma lagði land undir fót og kláraði sína fyrstu útskipun á Austurlandi. Skipað var út um 900 tonnum af brotajárni frá Reyðarfirði í HAV BRIM og skipinu síðan siglt áfram til Akraness þar sem lestað var um 1.600 tonnum af brotajárni í viðbót. Skipið sigldi því næst til Rotterdam þar sem farmurinn var aflestaður og […]

Málma styrkir íþróttastarf Aftureldingar

Við hjá Málma erum virkilega ánægð að hafa stutt við bakið á Aftureldingu í frumraun sinni í Bestu deildinni í fótbolta ásamt því að hafa styrkt handboltadeild félagsins. Við stöndum með þeim í blíðu og stríðu. Áfram Afturelding!

Málma er í hópi Framúrskarandi fyrirtækja 2025

Framúrskarandi fyrirtækja 2025

Málma er í hópi 2% íslenskra fyrirtækja sem teljast Framúrskarandi fyrirtæki árið 2024 hjá CreditInfo. CreditInfo velur Framúrskarandi fyrirtæki árlega en þau fyrirtæki sem komast á lista eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast Framúrskarandi þarf að uppfylla ströng skilyrði á borð við ákveðna afkomu, eiginfjárhlutfall og eignir og erum við því mjög stolt af þessari viðurkenningu.